Þjóðlendur

Fimmtudaginn 05. febrúar 1998, kl. 11:00:02 (3432)

1998-02-05 11:00:02# 122. lþ. 60.2 fundur 367. mál: #A þjóðlendur# frv., SighB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[11:00]

Sighvatur Björgvinsson (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. félmrh. sagði að óhjákvæmilegt væri að draga önnur mál inn í umræðu um þjóðlendufrv. forsrh. og það hefur hann gert. Það er rétt, ég álasa honum ekkert fyrir það. En ég ítreka að fyrsta verk hæstv. félmrh. eftir að hæstv. forsrh. hafði lokið máli sínu var að draga önnur mál, önnur frv. inn í umræðuna.