Þjóðlendur

Fimmtudaginn 05. febrúar 1998, kl. 14:15:09 (3471)

1998-02-05 14:15:09# 122. lþ. 60.2 fundur 367. mál: #A þjóðlendur# frv., SighB (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[14:15]

Sighvatur Björgvinsson (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Þar sem ég kvaddi mér hljóðs um fundarstjórn forseta vil ég taka fram að fundarstjórn forseta er með hreinum ágætum. En mér finnst ástæða til að óska eftir við þessar aðstæður að yfirmaður skipulagsmála, þ.e. hæstv. umhvrh., verði viðstaddur umræðuna. Það er mjög eðlilegt því að margir hv. þm. koma einmitt inn á skipulagsmálin á hálendi Íslands og að sjálfsögðu er það fyrst og fremst hæstv. umhvrh. sem er fær um að svara þeim spurningum um fyrirætlanir sínar sem hér hafa verið bornar fram. Ég vil því óska eftir því við virðulegan forseta að hann geri ráðstafanir til þess að hæstv. umhvrh. geti verið við umræðurnar. Í ræðu minni síðar í dag ætla ég að beina sérstökum spurningum til hans þannig að tilefnið er nægilegt.

(Forseti (StB): Forseti mun gera ráðstafanir vegna þessara óska sem hafa komið fram.)