[prenta uppsett í dálka] 62. fundur
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Hér er búið að leggja fram frv. til laga vegna deilu sjómanna og útgerðarmanna. Það sem greitt er atkvæði um nú er hvort efnisleg umræða megi fara fram strax eða hvort bíða eigi í tvær nætur eftir að slík umræða geti hafist. Þar sem ég hygg að stjórnarandstaðan muni lítt hugsa þessar tvær nætur um málið og ekki batnar umræðan við biðina, þá tel ég að það sé fyrirsláttur að þá skorti þekkingu til að ræða málið strax því þeir fóru í utandagskrárumræðu fyrir viku síðan um þetta mál. Ég segi því já.