Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

Þriðjudaginn 10. febrúar 1998, kl. 13:52:21 (3576)

1998-02-10 13:52:21# 122. lþ. 63.1 fundur 376. mál: #A framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna# þál., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur

[13:52]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég tel að okkur miði síður en svo aftur á bak, okkur miðar á rétta leið. Því til staðfestingar minni ég á að félmrn. er í algjörri forustu í þessu efni. Ég minni á að í athugun, sem var gerð í fyrra, kom í ljós að í nefndum sem ég hef skipað er kynjahlutfall réttast af nefndum allra ráðuneyta, eða 40%. Félmrn. var eina ráðuneytið sem komst nálægt því að hafa 40% þátttöku kvenna í nefndum. Hjá okkur er fullur vilji að áminna önnur ráðuneyti og við höfum líka gætt þess arna.

Hins vegar eru ráðherrum settar nokkrar skorður þegar leitað er tilnefninga í nefndir því að venjulega ræður ráðherrann ekki nema einum í hverri nefnd og verður að fara eftir tilnefningum annarra aðila. Við höfum beint því til þeirra sem við óskum tilnefninga frá að þeir gefi valkosti þannig að hægt sé að halda kynjajafnvægi innan nefnda.