Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

Þriðjudaginn 10. febrúar 1998, kl. 14:03:15 (3579)

1998-02-10 14:03:15# 122. lþ. 63.1 fundur 376. mál: #A framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna# þál., KÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur

[14:03]

Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þm. ætti að kynna sér stjórnsýslulögin sem í gildi eru en í þeim er kveðið á um að ekki er heimilt að skipa skyldmenni sín og menn skuli gæta þar sérstaklega að hagsmunatengslum. Þannig að á meðan stjórnsýslulögin gilda geta þær aðstæður sem þingmaðurinn stakk upp á hreinlega ekki komið upp.