[prenta uppsett í dálka] 63. fundur
Ólafur Þ. Þórðarson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég kalla það undur og stórmerki ef í ljós er komið að hér eru komnir klónaðir menn á þing því að undir öllum öðrum kringumstæðum tel ég að þeir hljóti að hafa ættir á bak við sig og vildi ég gjarnan fá að vita hjá forseta hvort svo langt sé komið í þróun mála hér á landi.
(Forseti (StB): Vegna orða hv. þm. verður forseti að viðurkenna að hann brestur allar upplýsingar til þess að geta svarað.)