[prenta uppsett í dálka] 63. fundur
Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Hv. þm. kom undir lok máls síns að athyglisverðu máli sem er flutningur af landsbyggðinni. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki kynnt mér könnun Byggðastofnunar og vil því spyrja hv. þm.: Var sú könnun kyngreind? Voru konur spurðar sérstaklega og karlar sérstaklega? Ég veit að ekki aðeins á undanförnum áratugum heldur alla þessa öld hefur straumur kvenna úr dreifbýlinu til þéttbýlisins verið meiri en straumur karla. Þær hafa að hluta til horfið heim aftur en það er nú svo að í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu eru konur fleiri en karlar. Ég held að þetta sé einmitt dæmi um það sem þarf að kanna, þ.e. hinar mismunandi ástæður þess að konur og karlar flytja og þar af leiðandi að hugsanlega komi mismunandi hugmyndir um aðgerðir ef menn vilja sporna við. Ég kynnti mér slíka könnun sem gerð var í Vestmannaeyjum. Þar voru tölurnar ekki kyngreindar og gefa því ekki nógu góða hugmynd um það hverjir flytja og hvers vegna. Ég vil því undirstrika að þetta er enn eitt dæmi um það hversu mikilvægt er að fá kyngreindar upplýsingar vegna þess að það sem að baki býr getur verið svo misjafnt. Við vitum t.d. að atvinnumöguleikar kvenna á landsbyggðinni hafa því miður verið afar einhæfir.