Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Það er fjarri í lagi að ég hafi í huga að segja af mér starfi mínu og jafnvel þó að einhver kona kæmi þar í staðinn minn. Ég tel meginatriðið að úr grasrótinni spretti upp nægilega margar konur með almennri þátttöku þannig að þá lagast hitt í trúnaðarstörfum og forustustörfum í stjórnmálum. Ef þátttaka kvenna í almennum stjórnmálafundum er jöfn þátttöku karla og jafnmargar konur eru í boði til hinna ýmsu trúnaðarstarfa er enginn vafi á því að þær fylla sinn kvóta og vel það.
Ég tel ekki rétt að skylda ráðuneyti til eins eða neins, þ.e. ég vil fara vel að fólki, ekki að skipa því. Ég er tilbúinn að fara fram á það við ráðuneyti að þau vinni að jafnréttismálum og geri jafnréttisáætlanir en ég er ekki tilbúinn að skylda einn eða neinn til að gera það sem hann er e.t.v. tregur til að gera því að það væri vísasti vegurinn til þess að hleypa kergju í fólk og koma í veg fyrir að það vinni hlutina. Ég er fús til að hafa milligöngu um það og mun biðja Jafnréttisráð að útvega þær upplýsingar sem hefur verið talað um að standi út af og hvað er ógert úr síðustu jafnréttisáætlun.