[prenta uppsett í dálka] 64. fundur
Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Enn er einn hv. þm. á mælendaskrá um fundarstjórn forseta og forseti ætlar að gefa honum orðið en vonast til að þar með geti þessari umræðu um fundarstjórn forseta lokið. Ef menn vilja ræða sérstaklega skilning á þingskapalögum er forseti tilbúinn að setjast yfir það með þingflokksformönnum og finna því annan stað í umræðunni en í ákvæði þingskapa um fundarstjórn forseta.