Eignarhald á auðlindum í jörðu

Fimmtudaginn 19. febrúar 1998, kl. 14:46:53 (4096)

1998-02-19 14:46:53# 122. lþ. 72.5 fundur 425. mál: #A eignarhald á auðlindum í jörðu# frv., ÓÞÞ (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 72. fundur, 122. lþ.

[14:46]

Ólafur Þ. Þórðarson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég hef treyst því að fundarstjórn forseta væri á þann veg að hér væri til umræðu 425. mál. Ég hef því ekki viljað ræða um annað mál sem hæstv. iðnrh. flutti. Þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir hv. þm. Sighvats Björgvinssonar til að koma mér af þessu spori hef ég reynt að forðast það til þessa.

(Forseti (StB): Forseti vill ítreka að hér er 5. dagskrármál til umræðu.)