Eignarhald á auðlindum í jörðu

Fimmtudaginn 19. febrúar 1998, kl. 14:57:07 (4101)

1998-02-19 14:57:07# 122. lþ. 72.5 fundur 425. mál: #A eignarhald á auðlindum í jörðu# frv., Flm. SighB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 72. fundur, 122. lþ.

[14:57]

Flm. (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Hann hefur gert eina athugasemd við frv. en virðist að öðru leyti nokkuð sáttur við það. Það er sjálfsagt að gera þetta. En mér bara datt ekki í hug að nokkur þingmaður gæti haldið að jarðolía og jarðgas gæti talist til kola. Þess vegna ætti að geta staðið: ,,kol önnur en jarðolía, jarðgas og surtarbrandur``. Ég taldi ekki að nokkur þingmaður gæti ruglast á því og stæði í þeirri trú að jarðolía og jarðgas teldust til kola.