Skipan opinberrar nefndar um auðlindagjald

Fimmtudaginn 19. febrúar 1998, kl. 16:04:01 (4116)

1998-02-19 16:04:01# 122. lþ. 72.8 fundur 465. mál: #A skipan opinberrar nefndar um auðlindagjald# þál., ÁE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 72. fundur, 122. lþ.

[16:04]

Ágúst Einarsson (andsvar):

Herra forseti. Ég vona að orðalag mitt hafi ekki verið misvísandi. Ég talaði um að þessir tveir stjórnmálaflokkar hefðu þegar tekið ákvörðun um að vinna að sameiginlegu framboði í næstu alþingiskosningum. Alþb. tekur slíka ákvörðun síðar. Ég nefndi að í gangi væru viðræður og tillagan væri gott innlegg inn í þær. Í mínum huga er ljóst að þau mál eru nú til umræðu en flokkarnir eiga eftir að taka endanlegar ákvarðanir.