[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 122. lþ.
Frsm. félmn. (Kristín Ástgeirsdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Þetta atriði var ítarlega rætt í félmn. og m.a. fyrir tilstilli hv. þm. Hann tók þetta mál ítrekað upp og þetta var rækilega rætt við fulltrúa sveitarfélaganna. Meðan við sem setjum lögin vitum ekki annað en sveitarfélögin séu sátt við þetta fyrirkomulag og engin gagnrýni kemur fram af þeirra hálfu, leggjum við til að þetta atriði standi óbreytt að sinni.