Frekari upplýsingar um laxveiðikostnað Landsbankans

Mánudaginn 06. apríl 1998, kl. 15:15:24 (5389)

1998-04-06 15:15:24# 122. lþ. 101.94 fundur 297#B frekari upplýsingar um laxveiðikostnað Landsbankans# (um fundarstjórn), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 122. lþ.

[15:15]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Vegna orða hv. þm. vill forseti taka það fram sem ég held að öllum hv. þm. eigi að vera ljóst að forseti tekur ekki þátt í umræðum í þinginu og síst af öllu af forsetastól. Forseti metur leiðbeiningar hv. þm. um það hvað hægt er að gera. Forsætisnefnd hefur rætt þau erindi sem henni hafa borist frá þingflokki jafnaðarmanna, tvö bréf, og frá hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur og tekið þau til afgreiðslu á fundi sínum í morgun og mun kynna þeim sem sendu bréfin það sem forsætisnefnd hefur þegar gert.

Að öðru leyti er eins og komið hefur fram beðið frekari skýrslna frá Ríkisendurskoðun sem forseti þykist vita að hæstv. viðskrh. muni kynna þinginu þegar þar að kemur.