[prenta uppsett í dálka] 121. fundur, 122. lþ.
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):
Herra forseti. Ef ég man rétt þá segir í frumvarpstextanum að eitthvert þeirra þriggja ára sem þar eru tiltekin skuli menn hafa stundað veiðar og það kom fram í 1. umr. málsins af minni hálfu að hér er átt við það að nægjanlegt sé að menn hafi veitt eitthvert þessara ára, eitt eða fleiri. Ég vil einnig benda á að þessi rétta túlkun á frv. kom einnig fram í ræðu hv. 4. þm. Norðurl. e. fyrr í þessari umræðu í dag.