[prenta uppsett í dálka] 139. fundur, 122. lþ.
Forseti (Guðni Ágústsson):
Forseti vill lýsa tilhögun þingfunda í dag sem verður á eftirfarandi hátt:
Klukkan 13 verður gert hlé á þingfundi og stendur það til kl. 14 og gefst þá m.a. tími fyrir þingflokka að funda. Klukkan 14 verður fram haldið með dagskrárefni 139. fundar.
Klukkan 14.30 hefjast atkvæðagreiðslur um þau mál sem lokið hefur verið við á 139. fundi. Þá verður settur nýr þingfundur og á þeim fundi verða atkvæðagreiðslur samkvæmt boðaðri dagskrá.
Að loknum atkvæðagreiðslum um kl. 15.30 verður utandagskrárumræða um LÍN sem stendur í hálftíma. Málshefjandi er Svavar Gestsson og Björn Bjarnason menntmrh. verður til andsvara.
Klukkan 16.00 hefst utandagskrárumræða um heilbrigðismál sem stendur í klukkustund. Málshefjandi er Sighvatur Björgvinsson og til andsvara verður Ingibjörg Pálmadóttir heilbrrh.
Að loknum utandagskrárumræðum um kl. 17 verður settur nýr þingfundur, sá þriðji sem fyrirhugaður er í dag, og verður þá haldið áfram með umræður um þau mál sem ólokið var á dagskrá fyrsta fundar.
Gert er ráð fyrir kvöldfundi.