Fjárlög 1998

Þriðjudaginn 07. október 1997, kl. 13:46:04 (93)

1997-10-07 13:46:04# 122. lþ. 4.4 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv., Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur

[13:46]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Áður en umræðan hefst vill forseti geta þess að samkomulag er um það milli þingflokka að fyrstu ræðumenn, þ.e. talsmenn þingflokkanna, hafi allt að tvöfaldan ræðutíma í fyrri ræðu sinni. Að öðru leyti gilda ákvæði þingskapa um ræðutíma og ræðufjölda og forseti væntir þess að hæstv. fjmrh. stytti líka ræðu sína.