[prenta uppsett í dálka] 4. fundur
Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég held að það sé öllum ljóst sem hafa kynnt sér og þekkja til skattkerfisins á Íslandi að það krefst mikillar og brýnnar endurskoðunar. Ég vil ráðleggja hæstv. fjmrh. að hleypa fleirum að þessu starfi. Þó að aðeins sé um upplýsingasöfnun að ræða getur skipt máli hvar upplýsinga er leitað og hvernig og að menn einfaldlega komi með fleiri spurningar í slíku starfi. Mér finnst þetta vera svo brýnt og mikilvægt verkefni sem þarna á að fara að vinna að að mér finnst það hreinlega sjálfsagt að stjórnarandstaðan fái að koma að þessu verki. Ég veit ekki betur en að t.d. í efh.- og viðskn. hafi menn unnið afar vel saman að skattamálum þó að oft hafi verið ágreiningur um einstök atriði. Það er mikil vinna sem þarf að eiga sér stað í þessu og ég vil einfaldlega skora á hæstv. fjmrh. að sýna þá víðsýni að hleypa stjórnarandstöðunni að þessu verki því að skattkerfið er auðvitað eitthvað sem sæmileg sátt þarf að ríkja um. Það þarf að vera réttlátt. Það þarf að vera skilvirkt. Og það snýr bæði að fyrirtækjunum og einstaklingunum og því meiri og betri sátt sem er um slíkar breytingar og þróun skattkerfisins, því betra fyrir samfélagið og framtíð íslenskrar þjóðar og samkeppnishæfni hennar sem ráðherrann ber svo mjög fyrir brjósti.