Fjárlög 1998

Þriðjudaginn 07. október 1997, kl. 19:48:41 (133)

1997-10-07 19:48:41# 122. lþ. 4.4 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv., ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur

[19:48]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að fara núna út í talnafræði, ég mun gera það síðar í umræðunni. Hv. þm. til upplýsingar þá fylgdist ég með hverju einasta orði sem fór af vörum hans við þessa umræðu þannig að ég þekki málflutning hans mætavel. En ég mun víkja að þessum málum í ræðu minni síðar í kvöld.