Söfnunarkassar

Mánudaginn 03. nóvember 1997, kl. 17:44:54 (881)

1997-11-03 17:44:54# 122. lþ. 17.15 fundur 156. mál: #A söfnunarkassar# (brottfall laga) frv., 174. mál: #A Happdrætti Háskóla Íslands# (happdrættisvélar) frv., EKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur

[17:44]

Einar K. Guðfinnsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. fann að því að í máli okkar nokkurra þingmanna hefði komið fram það sjónarmið að flutningsmenn þessara frumvarpa vildu svipta títtnefnd samtök tekjum. Það er nákvæmlega það sem þessi frumvörp ganga út á. Þau ganga út á það að svipta þessi tilgreindu samtök, sem við höfum títt nefnt í umræðunni, stórum hluta tekna sinna. Það er það sem frumvörpin ganga út á.

Það sem ég tel vera alvarlegt í frumvörpunum er nákvæmlega það að þau skilja samtökin eftir í algeru tómarúmi og óvissu. Ekkert liggur fyrir um það eftir að hafa lesið frv. og greinargerðina sem því fylgir með hvaða hætti þessi samtök eiga að geta mætt því ofboðslega tekjutapi sem frv. gerir ráð fyrir að þau verði fyrir. Þetta er alvarlegt, virðulegi forseti. Það getur vel verið að það væri skynsamlegt að við reyndum að finna nýjar tekjuöflunarleiðir fyrir þessi samtök. Það er alveg sjálfstætt verkefni. En þessi frumvörp gera ekki ráð fyrir því.

Svo er eitt í lokin, virðulegi forseti. Mér fannst hins vegar ... (Gripið fram í.) Hv. flm. Guðni Ágústsson, ef hv. þm. vill að það sé niðurstaða umræðunnar hefði þá ekki verið miklu eðlilegra að þetta frv. gengi út á það en ekki að svipta einhliða samtök eins og Rauða kross Íslands tekjum upp á yfir 400 millj. kr. ef ég man rétt og skilja þau eftir í algerri óvissu?

Svo er það eitt í lokin, virðulegi forseti. Ég taldi mig heyra það frá hv. þm. Ögmundi Jónassyni fyrr í ræðu hans að hann hefði talað um að hann vildi setja upp skipulega spilavítastarfsemi en sagði hið gagnstæða áðan. Ég vildi gjarnan fá skýringar hans á þessu sjónarmiði.