Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Fimmtudaginn 06. nóvember 1997, kl. 11:25:04 (1031)

1997-11-06 11:25:04# 122. lþ. 21.1 fundur 81#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), HG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur

[11:25]

Hjörleifur Guttormsson (andsvar):

Virðulegur forseti. Það rímar nú ekki allt saman hjá hv. þm. Ég skal ekki vera að hafa uppi neinar getgátur um vilja fólks í flokkum eða úti í samfélaginu. Það eru svona sveiflur í því frá degi til dags. En það sem hv. þm. er að segja hér finnst mér lýsa vel mati hans á því hvernig eigi að byggja upp lýðræðislegt samfélag. Stjórnmálaflokkarnir eru væntanlega hornsteinn, eða við höfum litið svo til, í lýðræðislegu samfélagi á Íslandi og til þess að þeir séu það þá verða þeir auðvitað að vera með þokkalega frambærilega samræmda stefnu í þeim málum sem mestu skipta í samfélaginu. Hvaða vit væri í því að fara að leggja saman flokka sem hafa algerlega andstæð sjónarmið í grundvallaratriðum varðandi samskipti Íslands við umheiminn, varðandi samskiptin við Evrópu? Hvaða greiði væri þjóðinni gerður með slíku? Hvað eiga kjósendur að gera sem virða fyrir sér stefnu slíkra flokka? Er skynsamlegt í lýðræðislegu samhengi að segja pass í meginmálum og ætla að bjóða þjóðinni upp á slíkan graut? Ég teldi það stórháskalegt og í rauninni mjög ósvífið ef það ætti að reyna að bjóða upp á slíkt. En sami þingmaður hefur verið að segja fólki að í rauninni sé ekkert sem greinir þessa flokka að, Alþb. og Alþfl. Hann hefur haldið því fram í grein eftir grein. En á sama tíma kemur hann hér varðandi eitt örlagaríkasta mál íslensku þjóðarinnar og herðir ef nokkuð er á sókninni af hálfu Alþfl. í þeim efnum að Ísland skuli sækja um aðild að Evrópusambandinu.