Markaðshlutdeild fyrirtækja

Miðvikudaginn 12. nóvember 1997, kl. 13:37:10 (1127)

1997-11-12 13:37:10# 122. lþ. 23.2 fundur 211. mál: #A markaðshlutdeild fyrirtækja# (framleiðsla steinsteypu) fsp. (til munnl.) frá iðnrh., Fyrirspyrjandi TIO
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur

[13:37]

Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Í framhaldi af fyrri fyrirspurn er lögð hér önnur fyrirspurn fyrir iðnrh. sem er svohljóðandi:

Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild þriggja stærstu fyrirtækja landsins í framleiðslu steinsteypu?

Telur ráðherra ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi þeirra umfram það sem samkeppnislög segja til um?