Markaðshlutdeild fyrirtækja

Miðvikudaginn 12. nóvember 1997, kl. 13:40:32 (1129)

1997-11-12 13:40:32# 122. lþ. 23.3 fundur 212. mál: #A markaðshlutdeild fyrirtækja# (öl- og gosdrykkjaframleiðsla) fsp. (til munnl.) frá iðnrh., Fyrirspyrjandi TIO
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur

[13:40]

Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég vil leggja eftirfarandi fyrirspurn fyrir hæstv. iðnrh.:

Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild tveggja stærstu fyrirtækja landsins í öl- og gosdrykkjaframleiðslu?

Telur ráðherra ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi þeirra umfram það sem samkeppnislög segja til um?