Markaðshlutdeild fyrirtækja

Miðvikudaginn 12. nóvember 1997, kl. 13:48:58 (1138)

1997-11-12 13:48:58# 122. lþ. 23.6 fundur 219. mál: #A markaðshlutdeild fyrirtækja# (matvælamarkaður) fsp. (til munnl.) frá viðskrh., Fyrirspyrjandi TIO
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur

[13:48]

Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég beini eftirfarandi fyrirspurn til hæstv. viðskrh.:

Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild tveggja stærstu fyrirtækja á íslenskum matvælamarkaði?

Telur ráðherra ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi þeirra umfram það sem samkeppnislög segja til um?