Íslensk erfðagreining og Gagnalind hf.

Mánudaginn 17. nóvember 1997, kl. 15:19:36 (1258)

1997-11-17 15:19:36# 122. lþ. 26.1 fundur 90#B Íslensk erfðagreining og Gagnalind hf.# (óundirbúin fsp.), SF
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur

[15:19]

Siv Friðleifsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég vil ítreka fyrri spurningu mína til hæstv. heilbrrh. Ef það er svo að Íslensk erfðagreining ætli að kaupa Gagnalind hf., sem hefur verið að þróa tölvukerfi og þjóna notendum, mun ráðherrann þá beita sér gegn því? Hér er um afar viðkvæmar persónuupplýsingar að ræða sem ótækt er að ríki ekki trúnaður um. Getur hæstv. heilbrrh. sagt við þjóðina hvað gera skuli ef Íslensk erfðagreining ætlar sér að kaupa Gagnalind hf.?