[prenta uppsett í dálka] 26. fundur
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Með orðum mínum áðan var ég ekki að leitast við að gera þann grundvöll sem á er byggt tortryggilegan. Ég var eingöngu að vekja athygli á því sem einn af hv. þingmönnum hér virtist gera að úrslitaatriði að það væri nánast forkastanlegt að Íslendingar litu til einhverra hagsmuna í þessu sambandi, eins og hann sagði þegar hann lét ónefndan mann fá mikið hikstakast í húsi í Helsinki og gerbreytti stefnu Alþfl., og það væri eitthvað sérstakt fyrir okkur. Ég taldi alveg rétt að færa ákveðin rök fyrir því, að þessu gefna tilefni, að menn viðurkenna vandamálið, kjósa að viðurkenna vandamálagrundvöllinn en þeir reyna jafnframt að finna lausnir sem henta þeirra efnahag, þeirra atvinnustigi og þeirra aðstæðum eins og ég nefndi varðandi Þýskaland. Þar eru heppilegar aðstæður vegna þess að þar er sjálfgefið að af munu leggjast alls konar verksmiðjur sem stóðu fyrir eiturgufuspýjum út í andrúmsloftið í stórum stíl. Og í staðinn fyrir að nota það í þágu andrúmsloftsins er það notað í þágu annarra sem ekki standa jafn vel að vígi.
Hvað sem segja má um kosti og galla Evrópusambandsins, þá tel ég að þau ríki sem þar eru aðilar og hafa myndað bandalag, eigi ekki auðveldara með að kljást við vandann heldur en önnur ríki. Ég er hreinlega ósammála því. Við Íslendingar getum væntanlega óskað eftir því að frekar verði farið eftir fermetrum, stærð og umfangi lofthjúpsins fyrir ofan okkur og ég býst við að Rússar mundu gera það ef aðstæður þeirra væru þannig.