Skyldutrygging lífeyrisréttinda

Þriðjudaginn 18. nóvember 1997, kl. 15:15:09 (1344)

1997-11-18 15:15:09# 122. lþ. 27.1 fundur 249. mál: #A skyldutrygging lífeyrisréttinda# (heildarlög) frv., ÁE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur

[15:15]

Ágúst Einarsson (andsvar):

Herra forseti. Ég óska eftir aðeins betri skýringu á ummælum hv. þm. varðandi 2. gr. Skildi ég hann rétt að hann styddi ekki 2. gr. eins og hún liggur fyrir í frv., svo að það sé þá alveg ljóst að hverju menn ganga? Það hefur verið skýrt hvernig frv. er lagt fram sem niðurstaða nefndar sem vann hér í sumar og það er lagt fram sem stjfrv. Ég ætla ekki að tala um hvort það njóti þingmeirihluta eða eitthvað þess háttar. Það er ekki það sem ég er að spyrja um heldur einfaldlega á þessu stigi málsins hvort það sé rétt skilið hjá mér að hv. þm. styðji ekki 2. gr. eins og hún liggur fyrir í frv.