Húsaleigubætur

Fimmtudaginn 04. desember 1997, kl. 18:58:29 (1701)

1997-12-04 18:58:29# 122. lþ. 35.3 fundur 290. mál: #A húsaleigubætur# (heildarlög) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 35. fundur

[18:58]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil taka það fram að þeir þröskuldar sem eru í þessu húsaleigubótakerfi voru búnir til af hv. þm. sjálfum, þ.e. hv. 13. þm. Reykv., þegar hún var ráðherra. Þá þóttu henni þeir ... (JóhS: Þú hefðir getað breytt ...) Ég hefði getað breytt þeim. En þeir eru þarna fyrir tilverknað hv. þm. Og ef þeir voru passlegir meðan hún var ráðherra þá tel ég að það hljóti að hafa verið vel hugsað fyrir leigjendunum og það eigi vera sæmilega fyrir því séð.

Þessar 200 milljónir sem ætlaðar hafa verið frá ríkinu til húsaleigubóta hafa ekki gengið út enn þá. Ríkishlutinn í húsaleigubótunum hefur aldrei náð 200 milljónum. (JóhS: En nú er verið að víkka út kerfið.) Nú er verið að víkka út kerfið. Það hefur komið hér fram að það eru reyndar 80% leigjenda sem búnir eru að fá húsaleigubætur. Það víkkar út um 20% og það er séð fyrir því í þessu uppkasti að samkomulagi sem við erum að gera við sveitarfélögin.