[prenta uppsett í dálka] 35. fundur
Ögmundur Jónasson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það er alveg rétt að framkvæmdin er ólík varðandi greiðslu á vaxtabótum og húsaleigubótum en grunnhugsunin er hin sama. Við erum að styrkja fólk til að afla húsnæðis og spurningin er á herðum hvers það eigi að hvíla, hvort það eigi að vera sveitarfélög eða ríkið. Ég er á þeirri skoðun að það eigi að vera ríkið sem standi þar að baki og þetta eigi að vera réttur einstaklingsins og ekki komið undir búsetu hvernig hann er nýttur.
Það er ekki rétt hjá hæstv. félmrh., ef þær tölur sem hér voru settar fram í umræðu um málið, að tekjulægsta fólkið verði ekki fyrir skerðingu. Fyrir því voru færð rök og komið fram með tölur sem lutu að því að fólk í leiguhúsnæði, með undir einni milljón kr. í árstekjur, sem nú þyrfti að greiða raunvexti af þessu húsnæði, yrði fyrir tekjuskerðingu upp á 10--15 þús. kr. á mánuði nema viðkomandi sveitarfélög hlypu undir bagga með einhverjum öðrum hætti. Fyrir því höfum við ekki neina vissu og þess vegna er spurning mín: Mun hæstv. ráðherra taka þessi mál upp, og í þessu samhengi, í viðræðum við sveitarfélögin? Tilgangurinn með öllum þessum breytingum hlýtur að vera sá að bæta hag leigjenda og bæta sérstaklega hag þess fólks sem býr við lægstu kjörin og leigir jafnframt. Ef það kemur í ljós að þessu meginmarkmiði sé í hættu stefnt verður þá ekki þessi lagasmíð endurskoðuð og í framhaldi af henni þá væntanlega einnig fyrirhugaðar ráðstafanir sveitarfélaganna? Hæstv. félmrh., sem við skulum ætla að sé að hugsa um hag þessa fólks, verða þær ákvarðanir ekki endurskoðaðar?