Sveitarstjórnarlög

Föstudaginn 05. desember 1997, kl. 18:38:45 (1800)

1997-12-05 18:38:45# 122. lþ. 36.13 fundur 288. mál: #A sveitarstjórnarlög# (heildarlög) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur

[18:38]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ef hv. þm. Ágúst Einarsson les 3. mgr. 3. gr. gildandi sveitarstjórnarlaga, þá sér hann að sveitarfélögunum eru fengnar sömu heimildir í afréttum og í byggð. Ef hann athugar landakortið, þá sér hann að rétt að segja allt Ísland nema jöklarnir, tilheyrir einhverri afrétt. Það er ekkert einskismannsland, eða hér um bil ekkert, sem ekki er leitað á haustin.