Tekjuskattur og eignarskattur

Mánudaginn 08. desember 1997, kl. 17:01:11 (1837)

1997-12-08 17:01:11# 122. lþ. 37.7 fundur 328. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (lífeyrisiðgjöld o.fl.) frv., SighB
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur

[17:01]

Sighvatur Björgvinsson:

Virðulegi forseti. Hv. síðasti ræðumaður beindi tveimur mjög mikilvægum spurningum til hæstv. fjmrh. sem hann á ekki að komast undan að svara því það skiptir miklu máli hver svör hans eru. Ég ítreka óskir hv. síðasta ræðumanns til hæstv. ráðherra um að hann svari þeim spurningum sem hv. þm. Ágúst Einarsson lagði fyrir hann áður en þessari umræðu lýkur.