[prenta uppsett í dálka] 38. fundur
Guðni Ágústsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það er stundum svo þegar menn hafa haldið myndarlegar ræður að þær enda með stórslysi eins og henti hv. alþm. sem var að ljúka máli sínu. Hann segir að salan á íslenska hestinum erlendis séu einungis draumórar og tekur síðan slysið Litháen. Ég get tekið undir með honum að það var misheppnað ævintýri sem einhverjir menn fóru út í en það hafa orðið slys í fleiri atriðum. En ég er ósammála því að það séu draumórar að selja íslenska hestinn erlendis, þar held ég að við eigum gífurlega möguleika og það höfum við sannað í nokkra áratugi. Við höfum náð verulegum árangri. Tugir þúsunda af íslenska hestinum gleðja fjölskyldur um alla Evrópu. Við höfum náð verulegum árangri í Þýskalandi og við sjáum það best þegar hér fara fram hátíðir hestamanna eins og landsmótin, þá koma hingað mörg þúsund manns, oft allt að 4 þúsund erlendir gestir. Hingað koma árlega þúsundir erlendra hestamanna til þess að ferðast um landið þannig að þar höfum við náð miklum árangri. En við getum auðvitað náð enn lengra og því þurfum við að ráða við ákveðna hluti, markaðssetja hestinn svolítið með öðrum hætti. Þetta er fjölskylduhestur heimsins og á það eigum við að leggja áherslu. Ég tel að íslenskar sveitir og íslenskir hestamenn eigi nýja og mikla möguleika í sambandi við útflutning og markaðssetningu á hestinum sem er ein dýrmætasta afurð landsins.