[prenta uppsett í dálka] 38. fundur
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hafði nú farið efnislega eins og ég gat yfir þetta atriði sem hv. þm. nefndi sérstaklega og tel mig hafa skýrt það, a.m.k. eins og það horfir við mér hvernig það ákvæði er. Það er náttúrlega augljóst og ég hygg að hv. þm. hafi séð það hér í ræðustólnum, að við getum ekki haldið okkur við óbreytta 65. gr. eftir aðrar orðalagsbreytingar. Það á hreinlega ekki lengur við. En látum það nú vera.
Ég tel að það sem menn eru að gera sé að færa tengingarnar að breytingunum sem gerðar eru í 9. gr. Þá er spurningin: Eru þær breytingar nægjanlegar á 9. gr.? Það hefur hv. þm. dregið í efa. Ég segi aftur á móti: Það er gott sem gamlir kveða og í þessu tilfelli hafa þessir gömlu réttara fyrir sér heldur en ungu mennirnir hér þó við séum farnir að gamlast nokkrir hér pínulítið.
Lásinn er tvöfaldur. Miðað er við að neysluvísitalan sé í lágmarki og síðan er viðmiðunin kaupið að auki. Tökum almennu lífeyrissjóðina sem dæmi. Þar er miðað eingöngu við neysluvísitöluna. Það verða að koma til sérstök ákvæði stjórnar lífeyrissjóðanna, eins og hefur gerst þegar þeim hefur vegnað betur, til þess að hækkunin sé meiri. Hjá lífeyrissjóðunum þar sem verkalýðshreyfingin ræður mestu er ekki miðað við launin. Þar er miðað við verðlagsvísitöluna. Við höfum þetta rýmra með þessari tengingu. Það á ekki að láta nægja að miða við neysluvísitöluna. Það á jafnframt að gæta þess að huga sérstaklega að og hafa viðmiðun á launaþróuninni og þá auðvitað er bara hægt að gera það þegar launaþróunin er vænlegri kostur en vísitala neysluverðs. Það gefur auga leið. Ég tel því að hér sé um tvöfaldan lás að ræða og ef ég ætti hjól sem ég á ekki, þá mundi ég treysta mér til þess að læsa því með slíkum lásum.