[prenta uppsett í dálka] 48. fundur
Margrét Frímannsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins þakka fyrir þau andsvör sem fram hafa komið því þar er tekið undir þau sjónarmið sem komu fram í ræðu minni og ítreka þá afstöðu, ekki bara mína, heldur Alþb., að þessi mismunun er óásættanleg og að því leytinu til höfum við fyrirvara þótt við styðjum málið vegna þess að það er skref í rétta átt.