Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Við sátum hér þrír karlar yfir umræðunni lengst af, auk forseta. Á sama tíma voru hér níu hv. þingmenn af kvenkyni. Ég segi það þeim til hróss að þær hafa sinnt þessu máli betur en við. Þó við höfum gert okkur gildandi í umræðunni eins og stundum áður enda virðast sumir ekki kunna við sig nema hérna í ræðustólnum. En ég tel að við ættum að samþykkja þetta frv. eins og hv. heilbr.- og trn. lagði til.