Ferill 49. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 49 – 49. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um kjör stjórnenda Pósts og síma hf.
Frá Ögmundi Jónassyni.
1. Hver eru kjör tíu æðstu stjórnenda Pósts og síma hf. og hvernig eru þau ákveðin:
a. í launum,
b. í öðrum beinum fjármunum,
c. í bifreiðum,
d. í öðru?
2. Hafa verið keyptar bifreiðar sérstaklega fyrir þessa einstaklinga, og þá hverja, og hvað hefur það kostað?