Ferill 65. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 65 – 65. mál.



Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um álbræðslu Norsk Hydro (Hydro Aluminium) á Íslandi.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



     1.      Hver er staða viðræðna íslenskra stjórnvalda við Norsk Hydro og/eða Hydro Aluminium um byggingu álbræðslu hérlendis og hvert er ráðgert framhald þeirra?
     2.      Hver er áætluð hámarksstærð og áfangaskipting álbræðslunnar og ráðgerður byggingartími?
     3.      Hvar er fyrirhugað að staðsetja álbræðsluna?
     4.      Hversu mikillar raforku yrði þörf fyrir álbræðsluna og hvaða virkjanir og stofnlínur þyrfti að byggja hennar vegna? Hver er áætlaður fjárfestingarkostnaður vegna byggingar raforkuvirkja og álbræðslunnar, í heild og sundurliðað eftir byggingaráföngum?
     5.      Hefur verið rætt um raforkuverð til álbræðslunnar og ef svo er, hvaða meginviðhorf eru þar lögð til grundvallar?
     6.      Er fyrirhuguð eignaraðild Íslendinga í álbræðslunni og ef svo er, hversu mikil?
     7.      Er ráðgert að útlendingar, og þá hverjir, eigi hlut í virkjunum vegna álbræðslunnar og ef svo er, hversu mikinn og með hvaða skilmálum?
     8.      Hefur umhverfisráðuneytið komið að viðræðum um þetta mál og hefur verið mótuð stefna um mengunarvarnir verksmiðjunnar?
     9.      Hvernig samræmist bygging álbræðslu fyrirhuguðum alþjóðasamningi um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda?
     10.      Hafa fleiri ráðuneyti en framangreind komið að þessu máli og hefur ríkisstjórnin gert samþykktir varðandi það?


Skriflegt svar óskast.