Ferill 87. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 87 – 87. mál.



Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um hestabúgarð í Litháen.

Frá Gísla S. Einarssyni.



     1.      Er ráðherra ljóst hver árangur hefur orðið af rekstri hestabúgarðs í Litháen á vegum Isen hf., sem Framleiðnisjóður landbúnaðarins styrkti á árunum 1994 og 1995?
     2.      Hversu mikið styrkti Framleiðnisjóður verkefnið alls, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hvaða skilyrði eru fyrir styrkveitingunum? Eru styrkir endurkræfir?
     4.      Hverjir aðrir styrktu verkefnið (sem gekk undir nafninu „Issawa“ (hestur guðs))?


Skriflegt svar óskast.