Ferill 88. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 88 – 88. mál.
Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um hrossaútflutning og kynningu á íslenska hestinum erlendis.
Frá Gísla S. Einarssyni.
1. Hefur Framleiðnisjóður landbúnaðarins lánað eða styrkt hrossaútflutning eða kynningar á íslenska hestinum erlendis á árunum 1990–97? Ef svo er, hversu háar upphæðir? Svar óskast sundurliðað eftir lánum og styrkjum.
2. Hverjum hefur hefur verið synjað um markaðsstuðning til kynningar og útflutnings á hrossum á sama tíma?
Skriflegt svar óskast.