Ferill 91. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 91 – 91. mál.



Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um réttindi og greiðslur í fæðingarorlofi.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



1.      Hvaða reglur — samkvæmt lögum, reglugerðum og kjarasamningum — gilda um launagreiðslur, lífeyrisgreiðslur, starfsaldurshækkanir og aðra réttindaávinnslu, lengd orlofs, rétt feðra og annað sem máli skiptir í fæðingarorlofi, hjá
       a.      ríki,
       b.      sveitarfélögum,
       c.      bönkum,
       d.      öðrum?
2.      Hvað voru greiðslurnar háar á síðasta ári vegna starfa hjá
       a.      hinu opinbera,
       b.      bönkum,
       c.      öðrum?
3.      Hve margar fæðingar var um að ræða og hver er áætlaður launatengdur kostnaður að meðaltali í hverju tilviki? Hver var heildarkostnaðurinn á hvert fæðingarorlof að meðaltali, annars vegar útlagður kostnaður og hins vegar að meðtöldum tengdum kostnaði?
4.      Hve mikill mundi kostnaðurinn á ári verða ef réttindi yrðu samræmd þannig að allir nytu bestu réttinda?


Skriflegt svar óskast.