Ferill 107. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 107 – 107. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um samstarf í framhaldi af jafnréttisráðstefnunni í Valmiera í Lett
Frá Guðnýju Guðbjörnsdóttur.
1. Hyggjast norrænu jafnréttisráðherrarnir stuðla að því að efld verði tengslin sem mynduðust á ráðstefnunni í Valmiera í Lettlandi í ágúst sl. milli baltneskra og norrænna stofnana og félagasamtaka á sviði jafnréttismála? Ef svo er, hvernig?
2. Hyggst ráðherra stuðla að frekari samskiptum á milli baltneskra og íslenskra einstaklinga, stofnana og félagasamtaka á sviði jafnréttismála í framhaldi af ráðstefnunni? Ef svo er, hvernig?