Ferill 108. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 108 – 108. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 117/1993.
Flm.: Ögmundur Jónasson, Guðrún Helgadóttir, Steingrímur J. Sigfússon.
1. gr.
Fyrir almenna tannlæknaþjónustu greiða sjúkratryggingar samkvæmt gjaldskrá sem ráð
Greiðslur sjúkratrygginga skv. 1. mgr. skulu vera sem hér segir:
1. Fyrir almennar tannlækningar barna og ungmenna, 17 ára og yngri, 90% en hver einstaklingur í þessum aldurshópi skal eiga kost á einni skoðun á ári hjá tannlækni sér að kostnaðarlausu.
2. Heimilt er að greiða 80% kostnaðar við gullfyllingar, krónu- og brúargerð hjá börnum og ungmennum, 20 ára og yngri, samkvæmt reglum sem ráðherra setur að fengnum tillögum tryggingaráðs. Því aðeins kemur til greiðslna samkvæmt þessum tölulið að fyrir liggi sérstök umsókn og samþykki sjúkratrygginga.
3. Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega 100% kostnaðar, þó er ekki greitt fyrir gullfyllingar, krónur, brýr eða tannplanta. Ráðherra er heimilt að fengnum tillögum tryggingaráðs að ákveða greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna þessara þátta.
Reikningi fyrir tannlæknaþjónustu skal framvísað á reikningsformi sem Tryggingastofnun ákveður.
2. gr.
Greinargerð.
Á undanförnum árum hefur tilkostnaður barnafólks og elli- og örorkulífeyrisþega við tann
Í skýrslu landlæknisembættisins, Heilbrigðisþjónustan — árangur og skipulag í nútíð og framtíð, sem gefin var út í apríl 1997, er varað við þjónustugjöldum og hækkun gjalda í heil
Prentað upp.
eru þjónustugjöldin of há fyrir þá lægst launuðu. Hér hefur orðið grundvallarbreyting á, því
að fyrri rannsóknir benda ekki til misræmis í aðgengi fólks eftir stéttum og efnum.“
Með samþykkt þessa frumvarps yrði stigið skref til að vinna gegn óheillaþróun undan
Greiðsluhlutdeild hins opinbera.
Greiðsluhlutdeild hins opinbera í tannlækniskostnaði hefur tekið miklum breytingum á undanförnum áratugum. Á áttunda og níunda áratugnum var kostnaðarhlutdeild Trygginga
Reglugerð um lækkun tannlækniskostnaðar var upphaflega sett af Magnúsi Kjartanssyni í upphafi áttunda áratugarins og er á leið voru stigin ýmis skref fram á við. Þannig setti þáver
Skerðing og aukin greiðslubyrði.
Árið 1992 var hlutdeild Tryggingastofnunar í tannlækniskostnaði barna undir 16 ára aldri færð úr 100% niður í 85%. Á árinu 1993 var framlagið enn skert og fært í 75% fyrir börn og unglinga. Sama ár var framlag Tryggingastofnunar við tannlækniskostnað elli- og örorkulíf
Athyglisvert er að skoða kostnaðarskiptingu Tryggingastofnunar og sjúklinga og breyting
Breytt aldursmörk í áföngum.
Með frumvarpinu er gert ráð fyrir breyttu greiðsluhlutfalli hins opinbera í tannlæknis
Dregið úr jaðaráhrifum hjá elli- og örorkulífeyrisþegum.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að draga úr kostnaði elli- og örorkulífeyrisþega við tannlækningar en þess eru mörg dæmi að efnalítið fullorðið fólk og öryrkjar hafi ekki getað leitað sér lækninga. Með þeim breytingum sem hér eru lagðar til yrði dregið verulega úr jaðaráhrifum innan almannatryggingakerfisins gagnvart elli- og örorkulífeyrisþegum.
Samkvæmt frumvarpinu er sú breyting gerð á 1. mgr. 37. gr. laga um almannatryggingar að felld er niður tilvísun til tannréttinga og sama gildir um tilvísun til gullfyllinga, krónu- og brúargerðar í 1. málsl. 2. mgr. Í stað þess er vísað til almennra tannlækninga en það hugtak skýrir sig að nokkru leyti sjálft. Hér er um að ræða almennar viðgerðir og tannréttingar aðrar en þær sem gerðar eru með föstum tækjum en um slíkar tannréttingar gilda reglur sem vísað er til í 33. gr. almannatryggingalaga.
Áætlaður kostnaður.
Erfitt er að áætla nákvæmlega kostnað við breytingarnar en þegar kostnaður við þær er metinn ber að hafa í huga hinn mikla fjárhagslega ávinning sem hlytist af því að bæta tann
Að öllu óbreyttu má hins vegar gera ráð fyrir því að þær breytingar sem hér eru lagðar til mundu, að mati yfirtannlæknis Tryggingastofnunar ríkisins, hafa í för með sér útgjaldaauka fyrir Tryggingastofnun að upphæð 263,7 millj. kr. sem skiptist eins og sést í eftirfarandi töflu.
Útgjöld almannatrygginga til einstakra hópa barna og lífeyrisþega árið 1995 og áætlun um útgjöld samfara breytingum á 37. gr. laga um almannatryggingar.
| Útgjöld TR 1996 í m.kr. | Núverandi endurgr . % | Breytt endurgr. % | Eftir breyt. í m.kr. |
|
| Börn og unglingar | ||||
| 16 ára unglingar | 24,4 | 50 | 90 | 43,9 |
| Börn, 0–15 ára í Reykjavík | 23,1 | 75 | 90 | 27,7 |
| Börn, 6–15 ára í Reykjavík, forvarnir | 39,3 | 75 | 90 | 47,2 |
| Börn, 0–15 ára utan Reykjavíkur | 308,5 | 75 | 90 | 370,2 |
| Öll börn, 0–15 ára, ein ókeypis skoðun á ári | 36,3 | 100 | 100 | 36,3 |
| Börn, 6-15 ára, önnur skoðun á árinu | 16,4 | 75 | 90 | 19,7 |
| Börn, 6-15 ára í Reykjavík, annað en forvarnir | 33,4 | 60 | 90 | 50,1 |
| Þroskaheftir, allir aldurshópar | 8,3 | 90 | 100 | 9,2 |
| 17 ára ungmenni | 0 | 0 | 90 | 44,0 |
| Börn samtals, fyrir og eftir breytingar | 489,7 | 648,3 | ||
| Elli- og örorkulífeyrisþegar | ||||
| Ellilífeyrisþegar með fulla tekjutryggingu | 36,8 | 75 | 100 | 49,0 |
| Ellilífeyrisþegar með skerta tekjutryggingu | 28,1 | 50 | 100 | 56,3 |
| Örorkulífeyrisþegar með fulla tekjutrygginu | 30,0 | 75 | 100 | 40,0 |
| Örorkulífeyrisþegar með skerta tekjutryggingu | 15,8 | 50 50505050--> | 100 | 31,7 |
| Ellilífeyrisþegar á stofnun án vasapeninga | 6,2 | 75 | 100 | 8,3 |
| Örorkulífeyrisþegar á stofnun án vasapeninga | 1,4 | 75 | 100 | 1,8 |
| Elli-/örorkulífeyrisþ. á stofnun m. vasapen. o.fl. | 12,8 | 100 | 100 | 12,8 |
| Elli-/örorkulífeyrisþegar án tekjutryggingar | 0 | 0 | 100 | 36,3 |
| Lífeyrisþegar samtals, fyrir/eftir breytingar | 131,1 | 236,2 | ||
| Allir samtals, fyrir og eftir breytingar | 620,8 | 884,5 | ||
| Vegna barna | Vegna lífeyrisþega | |||
| Hækkun í millj. kr. | 263,7 | 158,6 | 105,1 | |
| Hækkun í % | 42,5 | 25,6 | 16,9 |