Ferill 110. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 110 – 110. mál.



Tillaga til þingsályktunar



um nýbyggingu fyrir Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu.

Flm.: Hjörleifur Guttormsson.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja undirbúning að nýbyggingu fyrir Fram haldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu. Hið fyrsta verði á vegum menntamálaráðuneytisins skipuð byggingarnefnd fyrir skólann til að velja honum stað í Hornafirði og hafa forgöngu um hönnun bygginga. Stefnt verði að því að nýr áfangi skólahúss verði tekinn í gagnið við upphaf skólaárs haustið 2000.

Greinargerð.

    Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu var stofnaður vorið 1987 og hefur nú starfað í áratug. Á þessum tíma hefur skólinn sannað tilverurétt sinn, nemendur sem í upphafi voru um 50 talsins eru nú um og yfir 100 og síðustu árin hafa verið útskrifaðir 5–10 stúdentar ár lega og á undanförnum árum hafa verið útskrifaðir frá skólanum 110 starfsnámsnemendur (sjúkraliðar, 30 tonna skipstjórnarréttindi, fyrsta stigs stýrimenn, vélaverðir og annars stigs vélstjórar). Samhliða fjölgun nemenda hefur fjölbreytni í námi aukist, verknám og stutt hag nýtt nám hefur náð að festa rætur og fullorðinsfræðsla með námskeiðum og öldungadeild orð ið snar þáttur í tengslum við skólann.
    Framhaldsskólinn hóf störf til bráðabirgða í Nesjaskóla og hefur verið þar að mestu við óbreyttar aðstæður síðan. Þröngur húsakostur setur skólanum miklar skorður, eins og þeir geta sannfærst um sem hann heimsækja, en aðeins um 6 m 2 eru þar á hvern nemanda. Því er afar brýnt að hefja nú þegar undirbúning að nýbyggingu fyrir skólann með það að markmiði að hann geti innan fárra ára starfað við góðar aðstæður. Heimamenn með sveitarstjórn Hornafjarðar í fararbroddi leggja á þetta ríka áherslu og ekkert eitt mál er varðar samskipti við ríkið er þeim ofar í huga.
    Eðlilegt er að Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu verði alhliða miðstöð fram haldsmenntunar á Suðausturlandi í góðri samvinnu við aðra framhaldsskóla í kjördæminu. Samkomulag liggur nú fyrir um slíkt samstarf milli framhaldsskólanna á Austurlandi og rekstrarsamningur við menntamálaráðuneytið til þriggja ára. Fyrir liggur að tiltölulega lágt hlutfall fólks eða aðeins 40% íbúa á aðsóknarsvæði skólans á aldrinum 15–19 ára stundar þar framhaldsnám, en þetta hlutfall er 70–80% á landinu í heild. Vafalaust á ófullkomið húsnæði og lélegur aðbúnaður þátt í þessu og með nýbyggingu fyrir skólann mundu aðstæður hans og ímynd gerbreytast. Gera þarf skólanum kleift að rækta tengslin við atvinnulíf í héraðinu en með því gæti hann orðið að miklu liði við að treysta byggðina og stuðla að nýsköpun í at vinnu- og menningarlífi.
    Sem sveitarfélag varð Hornafjörður til sumarið 1994 við sameiningu þriggja sveitarfélaga, Mýrahrepps, Nesjahrepps og Hafnar. Það starfar nú sem reynslusveitarfélag með góðum árangri á öllum sviðum. Samstarf innan héraðsnefndar Austur-Skaftafellssýslu er jafnframt gott og einhugur í flestum efnum. Atvinnulíf er þróttmikið og hefur styrkst að undanförnu og gróska og vöxtur hafa einkennt þetta svæði síðustu árin. Unnið er að því að koma á fót svonefndum Nýherjabúðum til að efla nýsköpun í atvinnulífi, og hefur Háskóli Íslands tekið að sér ráðgjöf við það verkefni. Öflugur framhaldsskóli í Hornafirði er nauðsynlegur og ómiss andi þáttur í byggðarlaginu og fyrir allt Suðausturland. Með samþykkt tillögunnar sem hér er flutt leggur Alþingi sitt lóð á vogarskálina til að svo megi verða.