Ferill 156. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 156 – 156. mál.



Frumvarp til laga



um brottfall laga nr. 73/1994, um söfnunarkassa.

Flm.: Guðrún Helgadóttir, Gísli S. Einarsson,


Guðni Ágústsson, Ögmundur Jónasson.



1. gr.

    Lög nr. 73/1994 eru felld úr gildi.

2. gr.

    Lög þessi taka gildi 1. janúar 1998.

Greinargerð.


    Þegar lögin um íslenska söfnunarkassa voru til afgreiðslu á Alþingi voru þingmenn ekki á einu máli um ágæti slíkrar fjáröflunar. Íslenskir söfnunarkassar eru í eigu Rauða kross Ís lands, Landsbjargar, Samtaka áhugamanna um áfengis- og vímuefnavandann og Slysavarna félags Íslands og skal tekjum af kössunum varið til starfsemi þessara samtaka. Stuðningur við þessa lagasetningu byggðist á góðum málstað þeirra.
    Í lögunum er ákvæði um að dómsmálaráðherra setji „í reglugerð, að fengnum tillögum stjórnar Íslenskra söfnunarkassa, nánari ákvæði um staðsetningu, auðkenningu, fjölda og teg undir söfnunarkassa, eftirlit með þeim, notkun mynta og seðla við greiðslu framlaga, fjárhæð vinninga og aldur þeirra sem nota mega kassana til að leggja fram framlög en hann skal þó eigi vera lægri en 16 ár“. Þá getur ráðherra sett í reglugerð nánari fyrirmæli um framkvæmd laganna, þar á meðal greiðslu kostnaðar við eftirlit og endurskoðun.
    Engin reglugerð hefur hins vegar verið sett um framkvæmd laganna, eftirlit er nánast ekk ert og víst er að börn og unglingar eiga greiðan aðgang að kössunum. Þá er það staðreynd að fjöldi fólks hefur ánetjast spilafíkn vegna þeirra og er nú svo komið að miklum fjármunum er varið til að veita meðferð vegna þeirrar ógæfu sem þessi starfsemi hefur kallað yfir fólk.
    Tekjur af söfnunarkössum voru á reikningsárinu frá júlí 1995 til júníloka 1996 samtals 992,8 millj. kr. og eru þær undanþegnar skatti. Það eru vinningar einnig.
    Ástæðulaust er að tíunda frekar í greinargerð hvað þessi starfsemi er fáránleg. Flutnings menn telja reynsluna sýna að brýnt sé að leggja hana niður sem fyrst og því er frumvarpið flutt.







Prentað upp.