Ferill 199. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 208 – 199. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á grunnskólalögum, nr. 66/1995.
Flm.: Svanfríður Jónasdóttir, Margrét Frímannsdóttir,
Guðný Guðbjörnsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Rannveig Guðmundsdóttir.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:a. Í stað orðanna „og foreldra“ í 4. mgr. kemur: foreldra og nemenda.
b. Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Nemendur kjósa úr sínum hópi tvo fulltrúa til setu á skólanefndarfundum þegar fjall
2. gr.
Á eftir 1. mgr. 17. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Tveir fulltrúar nemenda, eða nemendaráðs þar sem það er starfandi, eiga rétt til setu á kennarafundum með málfrelsi og tillögurétt þegar fjallað er um skipulag skólastarfsins og önnur þau mál sem með beinum hætti snerta hagsmuni nemenda.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Samningurinn um réttindi barna, oftast nefndur barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, var undirritaður fyrir Íslands hönd 26. janúar 1990 og með samþykkt þingsályktunar á Alþingi 13. maí 1992 var ríkisstjórninni heimilað að fullgilda samninginn fyrir Íslands hönd. Það var gert hinn 28. október sama ár. Með fullgildingu barnasáttmálans skuldbinda íslensk yfirvöld sig til að tryggja íslenskum börnum öll þau réttindi sem þeim eru tryggð í sáttmálanum.
Í 12. gr. samningsins segir: „Aðildarríki skulu tryggja barni sem getur myndað eigin skoð
Flest börn dvelja stóran hluta dagsins í skóla og viðurkennt er að skólinn hefur mikil áhrif á uppeldi og félagsmótun barna og ungmenna. Fyrir mörg börn er skólinn bæði leik- og vinnu
Í núgildandi lögum um grunnskóla er hlutur foreldra við stjórn grunnskólans og möguleik
Í grunnskólalögum, nr. 49/1991, var gert ráð fyrir því að fulltrúi nemenda eða nemenda
Í grunnskólalögum, nr. 49/1991, var einnig ákvæði um skólaráð sem skipað skyldi fulltrú
Í eldri lögum var ekki ákvæði þess efnis að fulltrúar nemenda ættu rétt til setu á skóla
Með barnasáttmálanum er börnum veittur réttur til að láta í ljós skoðanir sínar um öll mál sem snerta þau sjálf. Til að tryggja betur en nú er formlegan farveg fyrir nemendur grunnskól
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Hér er lagt til að nemendum sé bætt við í upptalningu 4. mgr. 13. gr. laganna á þeim sem rétt eiga til setu á fundum skólanefndar þegar fjallað er um skipulag skólastarfsins eða önnur bein hagsmunamál nemenda.
Í ljósi þeirra verkefna sem skólanefnd eru falin þykir eðlilegt að nemendur eigi rétt til setu á fundum skólanefnda með málfrelsi og tillögurétti þegar skólanefnd fjallar um málefni sem snerta nemendur í viðkomandi skóla sérstaklega en í sumum skólahverfum eru fleiri en einn skóli. Skólanefnd staðfestir m.a. áætlun um starfstíma nemenda ár hvert og fylgist með námi og kennslu, skólanefnd getur gert tillögur til skólastjóra um umbætur í skólastarfi og skóla
Ný málsgrein sem lagt er til að bætist við 13. gr. laganna fjallar um fyrirkomulag kosninga á fulltrúum nemenda til setu á skólanefndarfundum. Rétt þykir að nemendur kjósi fulltrúa beint úr sínum hópi þar sem einungis er heimilt en ekki skylt samkvæmt núgildandi lögum að stofna nemendaráð. Einnig þykir rétt að fulltrúar nemenda séu tveir svo þeir hafi stuðning hvor af öðrum. Með því yrði tekið tillit til veikrar stöðu barna gagnvart hinum fullorðnu.
Um 2. gr.
Ný 2. mgr. er felld inn í 17. gr. Með málsgreininni er gert ráð fyrir því að nemendur, eða nemendaráð, eigi tvo fulltrúa á kennarafundum, þetta er stutt sömu rökum og sett eru fram fyrir tveimur fulltrúum nemenda í skólanefnd, þ.e. að þeir styrki hvor annan vegna veikrar stöðu barna gagnvart hinum fullorðnu.
Um 3. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.