Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 212 – 203. mál.



Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um húsnæðismál Sjómannaskólans.

Frá Steingrími J. Sigfússyni og Guðrúnu Helgadóttur.



     1.      Hver er áætlaður heildarkostnaður við endurbætur á húsnæði Sjómannaskólans miðað við að þar verði annars vegar óbreytt starfsemi og hins vegar starfsemi á vegum Kenn ara- og uppeldisháskóla Íslands?
     2.      Hvenær stendur til að hefjast handa um endurbætur á húsnæði Sjómannaskólans ef hann verður áfram til húsa á sama stað?
     3.      Hver er áætlaður kostnaður eingöngu við flutning starfseminnar í annað húsnæði, sem og þess hluta búnaðar Sjómannaskólans sem ekki yrði endurnýjaður , og hvaða röskun yrði því samfara á skólastarfinu?
     4.      Hver er áfallinn kostnaður af vinnu arkitekta og annarra aðila vegna þessa máls?
     5.      Hvernig hefur verið háttað samráði við stjórnendur, starfsfólk og nemendur Sjómannaskólans um framtíðarlausn í húsnæðismálum skólans?
     6.      Hver er afstaða ráðherra til þess að Sjómannaskólinn verði áfram í eigin húsnæði eða gerist leiguliði annarra?
     7.      Hver er eigandi húsnæðisins sem hugmyndir eru um að Sjómannaskólinn flytjist í og hvaða viðræður hafa átt sér stað við hann um þetta mál?




















Prentað upp.