Ferill 205. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 214 – 205. mál.



Fyrirspurn



til samgönguráðherra um niðurlagningu starfsstöðvar Vegagerðarinnar í Rangárvallasýslu.

Frá Ísólfi Gylfa Pálmasyni.



1.      Er ráðherra samþykkur fyrirhugaðri niðurlagningu starfsstöðvar Vegagerðarinnar í Rangárvallasýslu?
2.      Hvaða rök liggja að baki ákvörðuninni? Eru þau fjárhags-, skipulags- eða stjórnunarlegs eðlis?
3.      Hver er áætlaður sparnaður Vegagerðarinnar vegna lokunar starfsstöðvarinnar? Hvernig hyggst stofnunin ná honum og hvernig verður því fé varið? Hvert er áætlað söluverð áhaldahússins á Hvolsvelli?
4.      Hver er heildarstefna Vegagerðarinnar varðandi lokun starfsstöðva annars staðar en á Suðurlandi?