Ferill 210. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 223 – 210. mál.



Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um markaðshlutdeild fyrirtækja.

Frá Tómasi Inga Olrich.



    Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild tveggja stærstu málmbræðsluvera lands ins?
    Hver er hlutdeild þeirra í kaupum á orku til orkufreks iðnaðar?
    Telur ráðherra ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi þeirra umfram það sem samkeppnislög segja til um?