Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 233 – 220. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um markaðshlutdeild fyrirtækja.
Frá Tómasi Inga Olrich.
Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild þriggja stærstu fyrirtækja landsins í bankastarfsemi?
Telur ráðherra ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi fyrirtækja í bankastarfsemi umfram það sem samkeppnislög segja til um?