Ferill 33. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 238 – 33. mál.
Svar
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um kreditkortafyrirtæki.
a.
Í hvaða löndum OECD tíðkast það að krafist er persónulegrar ábyrgðar þriðja manns fyrir greiðslu í kreditkortaviðskiptum og hver er ástæða þess að krafist er slíkrar ábyrgðar hér á landi?
Kreditkortafyrirtæki, líkt og aðrir lánveitendur, reyna að tryggja sig gegn greiðslufalli skuldara og draga með því móti úr áhættu sinni af viðskiptunum. Hægt er að tryggja sig með ýmsum hætti. Þannig geta kreditkortafyrirtæki t.d. hækkað þjónustugjöld í því skyni að mynda sjóð til mótvægis við líklegt tap vegna greiðslufalls. Hér á landi hafa lánveitendur, jafnt í kreditkortaviðskiptum sem öðrum lánsviðskiptum, yfirleitt krafist persónuábyrgða til tryggingar skilvísum greiðslum.
Nefnd á vegum viðskiptaráðuneytisins kannaði á síðasta ári umfang persónuábyrgða og komst að þeirri niðurstöðu að flest benti til að persónuábyrgðir væru mun algengari hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum (Ábyrgðarmenn fjárskuldbindinga. Viðskiptaráðu
neytið, nóvember 1996). Ráðuneytið hefur hins vegar ekki undir höndum tölulegar upplýs
ingar um umfang persónuábyrgða í kreditkortaviðskiptum í OECD-löndum og eftirgrennslan ráðuneytisins bendir til þess að slíkum upplýsingum sé ekki til að dreifa.
Upplýsingar sem ráðuneytið hefur aflað sér benda til að persónuábyrgðir á kreditkortum séu þekkt form í ýmsum löndum OECD, þótt leiða megi að því líkur að þær séu víðast mun sjaldgæfari en hér á landi. Þannig munu persónuábyrgðir á bak við kreditkort hafa verið al
gengar í eina tíð í Svíþjóð og Finnlandi en heyra nú orðið til undantekninga. Í Noregi og Danmörku eru debetkort mun algengari en kreditkort og viðskiptaumhverfið því ólíkt okkar að þessu leyti. Ráðuneytið hefur einnig fengið upplýsingar um að persónuábyrgða sé krafist í vissum tilfellum í Bandaríkjunum, Englandi og Írlandi.
Frá því að kreditkortaviðskipti hófust hér á landi hefur meginreglan verið sú að persónu
ábyrgða er krafist. Áður var ábyrgðarskuldbindingin gjarnan í formi óútfylls tryggingavíxils en nú síðustu árin hafa víxlarnir yfirleitt verið með fjárhæð í hlutfalli við úttektarheimild korthafans. Að sögn kreditkortafyrirtækjanna hefur mjög dregið úr notkun persónuábyrgða á síðustu missirum, en ekki liggja fyrir tölulegar upplýsingar um það.
Síðustu missirin hefur gagnrýni á notkun persónuábyrgða í kreditkortaviðskiptum aukist. Bent hefur verið á að óeðlilegt sé að neysluútgjöld á borð við almenn kreditkortaviðskipti séu tryggð með ábyrgð þriðja aðila. Viðskiptaráðuneytið hefur tekið undir þetta sjónarmið. Nefnd um persónuábyrgðir, sem minnst var á hér að framan og skipuð var fulltrúum stjórn
valda, bankakerfisins og Neytendasamtakanna, var sammála um að grípa skuli til aðgerða til að draga almennt úr veitingu lána með persónuábyrgðum. Viðskiptaráðuneytið og félags
málaráðuneytið eiga nú í samstarfi við bankakerfið, kreditkortafyrirtæki og Neytendasam
tökin um hvernig best sé að draga úr persónuábyrgðum. Í því sambandi hafa ráðuneytin lagt áherslu á að sé persónuábyrgða krafist skuli lánveitandi ávallt meta greiðslugetu lántaka og ábyrgðarmanns. Viðskiptaráðuneytið hefur að undanförnu jafnframt hugað að lagalegri stöðu kreditkortafyrirtækjanna.
b.
Hvaða trygginga er krafist í löndum þar sem ábyrgðar þriðja manns er ekki krafist?
Kreditkortafyrirtæki, eða þær lánastofnanir sem að baki þeim standa, verjast skakkaföll
um með ýmsum hætti. Algengt er í ýmsum nágrannalöndum að gefin séu út aukakort, t.d. á foreldra, sé um ungt fólk með litla reynslu í viðskiptum að ræða. Þá er algengt að þeir sem óska eftir kreditkorti séu metnir með hliðsjón af upplýsingum sem fyrir liggja hjá sérhæfðum upplýsingaþjónustum um skulda-, vanskila- og greiðslusögu umsækjandans. Hafi umsækj
andi traustan feril að baki að mati kreditkortafyrirtækis er ekki krafist frekari trygginga. Að öðrum kosti er viðskiptum hafnað eða frekari trygginga krafist.
Íslenskar lánastofnanir hafa ekki haft sama aðgengi að upplýsingum um fjárhagsstöðu lán
taka og algengt er víða erlendis. Nú hefur hins vegar verið stofnað fyrirtæki sem sérhæfir sig í slíkri upplýsingaþjónustu. Auk þess er nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins að kanna hvort og þá hvernig megi bæta aðgengi lánveitenda að upplýsingum um fjárhagsstöðu lántaka.
Þess má að lokum geta að sum alþjóðleg kortafyrirtæki, sem ekki hafa banka eða spari
sjóð að bakhjarli, taka meiri áhættu í kreditkortaviðskiptum sínum. Þau veita korthöfum víð
tækari úttektarheimildir, krefjast ekki trygginga og hafa hærri viðmiðunarmörk án heimildar
leitar. Þessi fyrirtæki krefjast á móti hærri þjónustugjalda af söluaðilum en þau fyrirtæki sem minni áhættu taka.
c.
Hve oft á sl. fimm árum hafa skuldir fallið á ábyrgðarmenn í kreditkortaviðskiptum?
Engar upplýsingar liggja fyrir um hve oft skuldir hafa fallið á ábyrgðarmenn í kreditkortaviðskiptum því ekki er sérstaklega haldið utan um hver kemur með greiðsluseðil til greiðslu á afgreiðslustöðum banka, sparisjóða eða pósthúsa. Hins vegar má hér vísa til skýrslu nefndar um persónuábyrgðir. Nefndin lét gera skoðanakönnun um umfang persónuábyrgða og voru ábyrgðarmenn spurðir sérstaklega hvort þeir hefðu greitt skuld fyrir lántaka á síðustu fimm árum. Spurningin laut að persónuábyrgðum almennt, ekki aðeins í kreditkorta
viðskiptum. Niðurstaðan var sú að tíundi hver Íslendingur á aldrinum 18–75 ára segist hafa greitt skuld vegna ábyrgðar á síðustu fimm árum. Sú niðurstaða bendir til að um 18 þúsund Íslendingar hafi þurft að leysa til sín skuld á tímabilinu. Í tæplega helmingi tilfella er um að ræða fjárhæðir undir 500 þús. kr. og tæp 60% hafa greitt minna en 1 millj. kr. Rétt er að ítreka að hér er átt við ábyrgðarmenn á öllum ábyrgðarskuldbindingum, ekki einungis ábyrgðarmenn í kreditkortaviðskiptum.